Subtitle
Kampavíns fjelagið

Um Okkur

Kampavínsfélagið er byggt á ástríðu fyrir kampavíni, góðum félagsskap og eftirminnilegum stundum. Við viljum gera heim kampavíns og gæða vína aðgengilegan og skemmtilegan fyrir alla með vönduðu vöruúrvali, fræðslu og viðburðum sem sameina fólk yfir góðu glasi.

Stofnað 2020

15

Ár af reynslu

20+

Framleiðendur

66.500+

Seldar Flöskur

30+

Viðburðir

Okkar nálgun

Við veljum kampavín og vín með áherslu á gæði, karakter og góða upplifun. Markmiðið er að bjóða upp á vín sem segja sögu og henta bæði fyrir sérstök tilefni og góðar stundir.

Upplifun og smökkun

Kampavínsfjelagið heldur smakkanir og viðburði þar sem fólk fær að kynnast víni á afslappaðan og skemmtilegan hátt. Engin stíf fræði, bara góð vín, fróðleikur og notaleg stemning.

Gæði og persónuleg þjónusta

Við leggjum áherslu á vandað vöruval, persónulega ráðgjöf og þjónustu sem hjálpar þér að finna réttu flöskuna fyrir rétta tilefnið.

Skoða Vöruúrval
Hafðu samband við Kampavínsfjelagið vegna fyrirspurna, bókana og vínsmökkunarviðburða